Herbergi í íbúð að Grenimel er laust í mest allt vor, þ.e. frá ca. miðjum janúar og fram í lok júní.
Íbúðin er lítið niðurgrafin kjallaraíbúð, 147 fermetrar, 5 herbergja (þar af 3 svefnherbergi) og að fullu innréttuð.
2 herbergi eru til leigu í íbúðinni:
- Herbergi A á meðfylgjandi mynd, ca. 8,3 fm: Búið að leigja út.
- Herbergi B á meðfylgjandi mynd, ca. 9,6 fm: 155.000 kr.
Herbergin leigjast eingöngu til einstaklinga. Leigusali mun að mjög takmörkuðu leyti nota 3. svefnherbergið (leigusali býr erlendis). Leigjandi hefur aðgang að allri íbúðinni, að undanskyldum öðrum svefnherbergjum.
Myndir í meðfylgjandi .pdf skjali.
Innifalið er hiti, rafmagn og internet. Ekkert dýrahald.
Leitað er að ábyrgjum, reyklausum og skilvísum leigjanda. Eins mánaðar tryggingarfé.
Áhugasamir geta haft samband með nánari deili á sjálfum sér.





















































